30 ml
Serum með 0,1% retinol sem hjálpar til við að bæta útlit húðar sem virðist hafa misst þéttleika eða er með ójafna áferð, fínar línur eða áberandi svitaholur. Með reglulegri notkun getur retinol stuðlað að sléttara og jafnara útliti húðarinnar.
Formúlan inniheldur einnig níu peptíð og A-Shot™ tækni með örsmáum Hydrolyzed Sponge-ögnum. Panthenol og allantoin eru í formúlunni til að styðja við rakajafnvægi og þægindi húðarinnar. Retinolserumið getur þó valdið þurrki eða ertingu, sérstaklega í byrjun, svo best er að byrja rólega og leyfa húðinni að venjast því.
Notaðu á kvöldin eftir hreinsun og áður en þú berð á rakakrem. Byrjaðu á því að nota serumið annað hvert kvöld fyrstu tvær vikurnar. Ef húðin þolir það vel geturðu aukið notkunina smám saman. Notaðu lítið magn og minnkaðu notkunina ef húðin verður ert eða þurr. Berðu sólarvörn á húðina næsta morgun.
Water, Methylpropanediol, Glycerin, 1,2-Hexanediol, Caprylic/Capric Triglyceride, Panthenol, Polypropylsilsesquioxane, C14-22 Alcohols, Glyceryl Stearates, Ammonium Acryloyldimethyltaurate/VP Copolymer, Hydrolyzed Sponge, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Oil, Acrylates/C10-30 Alkyl Acrylate Crosspolymer, Tocopherol, Retinol, Allantoin, Arginine, Undecane, Xanthan Gum, Ethylhexylglycerin, C12-20 Alkyl Glucoside, Lauryl Glucoside, Polyglyceryl-6 Laurate, Adenosine, Tridecane, Disodium EDTA, Daucus Carota Sativa (Carrot) Root Extract, Myristyl Glucoside, Glyceryl Acrylate/Acrylic Acid Copolymer, PVM/MA Copolymer, Butylene Glycol, Beta-Carotene, Glucose, Tripeptide-1, Palmitoyl Tripeptide-1, Nonapeptide-1, Hexapeptide-9, Dipeptide-2, Copper Tripeptide-1, Acetyl Tetrapeptide-5, Acetyl Hexapeptide-8, Palmitoyl Pentapeptide-4.
Samdægurs afhending
Pantanir gerðar fyrir kl. 11 virka daga eru afhentar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu en næsta virka dag annars staðar á landinu.