50ml
Peel-off maski sem myndar þunna filmu yfir húðina og hjálpar til við að varðveita raka á meðan virku innihaldsefnin vinna. Maskinn gefur húðinni fyllra, sléttara og ljómandi yfirbragð og hentar vel þegar húðin er þurr, dauf eða með ójafna áferð.
Formúlan sameinar PDRN og exosomes ásamt níasínamíði, glútaþíoni, panthenoli, kollageni og hýalúrónsýru. Innihaldsefnin veita raka, styðja við teygjanleika húðarinnar og hjálpa til við að jafna ásýnd húðlitar og mýkja fínar línur.
Maskinn breytist úr perlulituðu kremi í gegnsæja filmu og skilur húðina eftir mjúka, fyllri og með fallegan „glazed skin“ ljóma. Sílíkonbursti fylgir með til að auðvelda jafna og þrifalega notkun.
Notaðu sem síðasta skrefið í kvöldrútínunni. Leyfðu öðrum húðvörum fyrst að síast vel inn og berðu síðan jafnt lag af maskanum á þurra húð með burstanum sem fylgir. Forðastu augnsvæði, varir, augabrúnir og hárlínu. Láttu maskann þorna alveg þar til hann hefur myndað gegnsæja filmu. Þunnt lag þornar á um 20 mínútum en þykkara lag getur tekið um 40 mínútur. Losaðu filmuna varlega frá köntunum og flettu henni af. Þrýstu því sem eftir er af seruminu létt inn í húðina. Fyrir öflugri rakagjöf og ljóma má láta maskann liggja yfir nótt og fjarlægja hann morguninn eftir.
Aqua/Water, Polyvinyl Alcohol, Octyldodecanol, Methylpropanediol, Butylene Glycol, Niacinamide, Caprylic/Capric Triglyceride, 1,2-Hexanediol, Algin, Polysorbate 80, Pentaerythrityl Tetraethylhexanoate, Pullulan, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil, Polyglyceryl-10 Oleate, Glyceryl Stearate, PEG-100 Stearate, Titanium Dioxide, Disteardimonium Hectorite, Synthetic Fluorphlogopite, Mica, Microcrystalline Cellulose, Ethylhexylglycerin, Sphingomonas Ferment Extract, Adenosine, Cellulose Gum, Sodium Phytate, Sodium DNA, Tin Oxide, Glutathione, Acetyl Glucosamine, Allantoin, Panthenol, Hydrolyzed Collagen, Gluconolactone, Mannitol, Centella Asiatica Leaf Extract, Glycerin, Lactobacillus Extracellular Vesicles, Hydrated Silica, Citric Acid, Sodium Hyaluronate, Caprylyl Glycol, Acetyl Hexapeptide-8
Samdægurs afhending