50ml
Nærandi rakakrem sem veitir langvarandi raka og gefur húðinni mjúkt, fyllra og fallega ljómandi yfirbragð. Rík en silkimjúk áferðin hjálpar til við að styrkja húðvörnina og viðhalda raka án þess að skilja eftir þunga eða feita tilfinningu.
Formúlan inniheldur hrísgrjónavatn, ginseng, squalane og hýalúrónsýru sem veita húðinni raka og næringu. Níasínamíð hjálpar til við að jafna yfirbragðið og auka ljóma á meðan ceramide NP styður við sterka og heilbrigða húðvörn.
Kremið hentar öllum húðtýpum en sérstaklega vel normal, þurri og rakaþurfi húð. Það skilur eftir sig náttúrulega ljómandi „glass skin“ áferð og má nota bæði undir farða og sem nærandi næturkrem.
Berðu hæfilegt magn á andlit og háls eftir hreinsun, toner og serum. Þrýstu kreminu varlega inn í húðina þar til það hefur síast inn. Notaðu kvölds og morgna. Ef húðin er olíukennd eða blönduð er nóg að byrja með lítið magn, um hálfa baun. Fyrir normal eða þurra húð má nota ríkulegra magn. Notaðu sólarvörn sem síðasta skref morgunrútínunnar.
Water, Glycerin, Hydrogenated Polydecene, 1,2-Hexanediol, Niacinamide, Squalane, Butylene Glycol, Propanediol, Butylene Glycol Dicaprylate/Dicaprate, Cetearyl Olivate, Sorbitan Olivate, Ammonium Acryloyldimethyltaurate/VP Copolymer, Xanthan Gum, Panax Ginseng Root Water, Acrylates/C10-30 Alkyl Acrylate Crosspolymer, Tromethamine, Carthamus Tinctorius Seed Oil, Hydrogenated Coconut Oil, Glyceryl Acrylate/Acrylic Acid Copolymer, Oryza Sativa Bran Water, Ethylhexylglycerin, Adenosine, Caprylic/Capric Triglyceride, Disodium EDTA, Hyaluronic Acid, Hydrolyzed Hyaluronic Acid, Sodium Hyaluronate, Honey Extract, Ceramide NP, Hydrogenated Lecithin, Coptis Japonica Root Extract, Raphanus Sativus Seed Extract, Lycium Chinense Fruit Extract, Theobroma Cacao Seed Extract, Phellinus Linteus Extract, Dextrin, Scutellaria Baicalensis Root Extract
Samdægurs afhending