30ml
Létt og nærandi augnserum sem hjálpar til við að mýkja ásýnd fínna lína, bæta teygjanleika og gefa þreyttu augnsvæði sléttara og ferskara yfirbragð. Silkimjúk serum-áferðin síast hratt inn án þess að skilja eftir klístraða tilfinningu.
Formúlan sameinar retinal í stöðugum liposome-hylkjum og ginsengrót sem vinna saman að því að bæta ásýnd fínna lína, stinnleika og ójafns húðlitar. Níasínamíð, ceramide NP, hýalúrónsýra og peptíð veita jafnframt raka og styðja við húðvörnina.
Hentar sérstaklega vel fyrir augnsvæði sem glímir við fínar línur, þurrk, dökka bauga eða minni teygjanleika. Serumið má einnig nota á önnur svæði andlitsins, til dæmis á enni, broslínur eða háls.
Byrjaðu á að nota serumið 2–3 kvöld í viku. Taktu lítið magn og þrýstu því varlega undir augun og í kringum augnsvæðið með baugfingri. Forðastu að bera vöruna of nálægt augunum. Auktu notkunina smám saman eftir því hvernig húðin þolir retinalið. Haltu síðan áfram með rakakrem. Vöruna má einnig nota á morgnana, en þá þarf alltaf að nota sólarvörn sem síðasta skref. Ekki nota í sömu rútínu og önnur retinol- eða retinal-efni eða sterkar AHA-, BHA- og PHA-sýrur. Ekki er mælt með notkun á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur.
AQUA, GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, 1,2-HEXANEDIOL, BUTYLENE GLYCOL DICAPRYLATE/DICAPRATE, NIACINAMIDE, PENTAERYTHRITYL TETRAETHYLHEXANOATE, CETEARYL ALCOHOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, BUTYLENE GLYCOL, HYDROGENATED LECITHIN, PANAX GINSENG ROOT EXTRACT, CARBOMER, GLYCERYL STEARATE, TROMETHAMINE, MACADAMIA TERNIFOLIA SEED OIL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, ADENOSINE, CHOLESTEROL, DEXTRIN, POLYGLYCERYL-10 OLEATE, THEOBROMA CACAO (COCOA) EXTRACT, DISODIUM EDTA, BRASSICA CAMPESTRIS (RAPESEED) STEROLS, PHYTOSTERYL/BEHENYL/OCTYLDODECYL LAUROYL GLUTAMATE, RETINAL, SILICA, ALUMINUM/MAGNESIUM HYDROXIDE STEARATE, SODIUM HYALURONATE, TOCOPHEROL, POTASSIUM CETYL PHOSPHATE, PENTAERYTHRITYL TETRA-DI-T-BUTYL HYDROXYHYDROCINNAMATE, CERAMIDE NP, PALMITOYL TRIPEPTIDE-5
Samdægurs afhending