
Rakagefandi toner með mildri ensímhúðflögnun sem hjálpar til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og jafna óslétta áferð án AHA- eða BHA-sýra. Próteasaensím vinnur á yfirborði húðarinnar á meðan panthenol, betaine, hýalúrónsýra og berjaþykkni veita raka og róandi umhirðu. Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð, og er sérstaklega góður fyrir þurra en ójafna húð eða stíflaðar svitaholur.
Berið tonerinn á hreina húð með höndunum og klappið varlega inn eða strjúkið yfir andlit og háls með bómullarskífu. Notist að morgni og/eða kvöldi og fylgið eftir með serum og kremi. Fyrir mjög viðkvæma húð er gott að byrja 2–3 sinnum í viku og auka notkun eftir þoli.
Water, Butylene Glycol, Glycerin, Propanediol, 1,2-Hexanediol, Enzyme(Kerasolaze/Protease), Betaine, Panthenol, Xanthan Gum, Allantoin, Euterpe Oleracea Fruit Extract, Styrene/VP Copolymer, Pentylene Glycol, Vaccinium Macrocarpon (Cranberry) Fruit Extract, Sambucus Nigra Fruit Extract, Sodium Hyaluronate, Rubus Fruticosus (Blackberry) Fruit Extract, Beta-Glucan, Vaccinium Angustifolium (Blueberry) Fruit Extract, Rubus Idaeus (Raspberry) Fruit Extract, Caprylyl Glycol, Fructan