18 stk
Ofurþunnir og lítt áberandi bóluplástrar úr hydrocolloid-efni sem henta sérstaklega vel til notkunar yfir daginn. Plástrarnir vernda bóluna gegn óhreinindum og óþarfa snertingu um leið og þeir draga í sig vökva og hjálpa henni að gróa.
Þunnir kantarnir og mött áferðin falla vel að húðinni og gera plástrana nánast ósýnilega. Hægt er að nota þá eina og sér eða undir farða.
Hver pakkning inniheldur 18 bóluplástra í 10 mm stærð.
Hreinsið húðina og þurrkið vel. Setjið plásturinn beint á bóluna og þrýstið honum varlega niður. Látið hann sitja þar til hann verður hvítur eða hefur dregið í sig vökva og skiptið þá um hann. Ekki bera serum, krem eða aðrar húðvörur undir plásturinn þar sem það getur dregið úr viðloðun hans.
Petroleum Resin, Cellulose Gum, Styrene Isoprene Styrene Block Copolymer, Polyurethane Film, Polyisobutylene, Liquid Paraffin, Tetrakis Methane
Samdægurs afhending