100 ml
Öflugur en létt exfoliation-vökvi sem vinnur gegn fílapenslum, stífluðum svitaholum og umfram fituframleiðslu. Formúlan inniheldur 4% betaine salicylate, fituleysanlega BHA-sýru sem vinnur inni í svitaholunum og hjálpar til við að losa um uppsafnaða fitu og dauðar húðfrumur.
Víðibarkarvatn og niacinamide hjálpa til við að jafna fituframleiðslu, bæta áferð húðarinnar og draga úr sýnileika ummerkja eftir bólur. Panthenol og hýalúrónsýra veita jafnframt raka og hjálpa til við að halda húðinni í jafnvægi.
Hentar sérstaklega vel fyrir blandaða eða feita húð með fílapensla, stíflaðar eða áberandi svitaholur og bólumyndun. Varan hentar best þeim sem hafa einhverja reynslu af exfoliation-sýrum.
Berið lítið magn á hreina og þurra húð eftir hreinsun, annaðhvort yfir allt andlitið eða aðeins á svæði með fílapenslum og stíflum. Forðist augnsvæðið. Leyfið vörunni að síast vel inn áður en næstu húðvörur eru bornar á og ljúkið með rakakremi. Byrjið á notkun einu sinni í viku og aukið smám saman í 2–3 skipti í viku eftir því sem húðin þolir. Notið helst á kvöldin. Ekki nota sömu rútínu og retinol, aðrar exfoliation-sýrur eða sterkt C-vítamín. Notið sólarvörn daglega á meðan varan er í notkun.
Salix Alba (Willow) Bark Water, Butylene Glycol, Betaine Salicylate, Niacinamide, 1,2-Hexanediol, Arginine, Panthenol, Sodium Hyaluronate, Xanthan Gum, Ethyl Hexanediol
Samdægurs afhending