
Öflugur retinal-booster sem vinnur gegn fínum línum, ójafnri áferð og sýnilegum svitaholum. Formúlan inniheldur 0,1% hjúpað retinal ásamt 3% Matrixyl-peptíðum sem styðja við stinnleika húðarinnar. Örfínar A‑Shot™-agnir hjálpa virku efnunum að komast betur að og geta valdið vægum náladofa við notkun. Níasínamíð, 1% panthenól og glýserín veita jafnframt raka og styðja við húðvarnirnar. Hentar best húð sem þolir virk efni og vill vinna markvisst með öldrunarmerki, áferð og svitaholur.
Notið lítið magn að kvöldi á hreina og þurra húð, fyrst aðeins á valin svæði. Byrjið annan hvern eða þriðja dag og aukið notkun smám saman eftir þoli. Þegar húðin hefur vanist vörunni má bera þunnt lag yfir allt andlitið. Ljúkið með rakakremi. Forðist augn- og munnsvæði og notið ekki með öðrum retínóíðum eða exfolierandi sýrum í sömu rútínu. Notið sólarvörn daglega. Vægur náladofi getur verið eðlilegur, en hættið notkun ef sviði eða erting verður mikil. Ekki er mælt með notkun á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur.
Water, Butylene Glycol, Glycerin, Caprylic/Capric Triglyceride, Cetearyl Alcohol, Niacinamide, Diisostearyl Malate, 1,2-Hexanediol, Polypropylsilsesquioxane, Panthenol, Cetearyl Olivate, Cetearyl Glucoside, Sorbitan Olivate, Hydroxyethyl Acrylate/Sodium Acryloyldimethyl Taurate Copolymer, Lecithin, Carbomer, Arginine, Dimethicone/Vinyl Dimethicone Crosspolymer, Tocopherol, Retinal, Xanthan Gum, Ethylhexylglycerin, Adenosine, Sorbitan Isostearate, Sodium Lactate, Hydrolyzed Sponge, Disodium EDTA, Polysorbate 20, Ascorbic Acid, Glucose, Palmitoyl Tripeptide-1, Palmitoyl Tetrapeptide-7