
Íslenskt rakagefandi essence-serum með mildri ensímvirkri húðslípun. Einkaleyfisvarin ensímtækni með sjávarensími úr íslenskum þorski hjálpar til við að losa dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðarinnar og styður þannig við mýkri, sléttari og bjartari ásýnd. Hýalúrónsýra bindur raka í húðinni og hjálpar henni að verða fyllri og ljómandi. Hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri húð.
Serumið er án ilmefna en er ekki vegan þar sem ensímið er unnið úr þorski.
Berið 2–4 dropa á hreina húð í andliti, á hálsi og bringu. Klappið varlega inn í húðina og fylgið eftir með rakakremi. Má nota bæði kvölds og morgna og eins oft og þörf er á. Notið sólarvörn að morgni.
Glycerol, Aqua, Alcohol, Sodium Hyaluronate, Calcium Chloride, Tromethamine, Hydrochloric Acid, Trypsin