
Rakagefandi hydrogel-maskur sem róar húðina og hjálpar til við að styrkja náttúrulega rakavörn hennar. Formúlan inniheldur fjölþætta hýalúrónsýru, níasínamíð og vatnsrofið vegan kollagen sem veita raka, fyllingu og ljóma. Centella, madecassoside, asiatic acid og madecassic acid róa húðina, á meðan ceramíð og sheasmjör mýkja og styðja við húðvarnirnar. Ilmefnalaus og hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri, rakasnauðri og viðkvæmri húð.
Berið maskann á hreina, þurra húð. Takið maskann úr umbúðunum, fjarlægið hlífðarfilmurnar og leggið hann yfir andlitið. Látið maskann liggja á húðinni í 20–30 mínútur. Fjarlægið hann síðan og þrýstið því sem eftir liggur varlega inn í húðina. Maskinn verður smám saman gegnsærri eftir því sem húðin dregur í sig essensinn og veitir djúpan raka þar sem húðin þarfnast hans mest. Notist 2–3 sinnum í viku eða þegar húðin er þurr, strekkt eða þreytt. P.S. Fyrir extra rakaboost má hafa maskann á yfir nótt.
Water, Glycerin, Cetyl Ethylhexanoate, Niacinamide, Acrylates Copolymer, Dipropylene Glycol, 1,2-Hexanediol, Xanthan Gum, Hydroxyacetophenone, Carrageenan, Ceratonia Siliqua (Carob) Gum, Betaine, Allantoin, Potassium Chloride, Sucrose, Cellulose Gum, Sodium Polyacrylate, Caprylyl Glycol, Dipotassium Glycyrrhizate, Gellan Gum, Butylene Glycol, Adenosine, Ethylhexylglycerin, Sodium Phytate, Sodium Hyaluronate, Triethylhexanoin, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Centella Asiatica Leaf Extract, Hydroxypropyltrimonium Hyaluronate, Hydrogenated Lecithin, Hydrolyzed Collagen, Ceramide NP, Ceramide NS, Sodium Acetylated Hyaluronate, Hydrolyzed Hyaluronic Acid, Hyaluronic Acid, Madecassic Acid, Sodium Hyaluronate Crosspolymer, Hydrolyzed Sodium Hyaluronate, Asiatic Acid, Potassium Hyaluronate, Asiaticoside.
| Húðgerð | Blönduð, Olíukennd, Venjuleg, Þurr |
|---|