6 stk
Gjafasett með sex mismunandi sheet möskum frá SKIN1004 og tveimur hárklemmum. Allir maskarnir innihalda Centella Asiatica frá Madagaskar, sem er þekkt fyrir róandi eiginleika sína, en hver maski er sérstaklega hannaður fyrir ólíkar þarfir húðarinnar.
Settið inniheldur:
Watergel Sheet Ampoule Mask – róar húðina og veitir henni ríkulegan raka.
Tone Brightening Glow Mask – hjálpar til við að jafna húðlit og gefa húðinni fallegan ljóma.
Poremizing Clarifying Mask – hjálpar til við að hreinsa húðina, jafna fituframleiðslu og bæta ásýnd svitahola.
Hyalu-Cica Hydrating Mask – veitir mikinn raka og hjálpar húðinni að verða fyllri og mýkri.
Probio-Cica Nourishing Mask – nærir húðina og styður við sterka og heilbrigða húðvörn.
Tea-Trica Relaxing Mask – róar húð sem er viðkvæm fyrir roða, ertingu og bólum.
Fullkomið sett fyrir þá sem vilja prófa mismunandi maska frá SKIN1004 og velja maska eftir því hvað húðin þarf hverju sinni.
Berið maskann á hreina og þurra húð, eftir toner ef hann er notaður. Látið liggja á húðinni í 10–15 mínútur og fjarlægið. Klappið því sem eftir er af essensinum varlega inn í húðina þar til hann hefur síast inn. Ekki þarf að skola af. Ljúkið með rakakremi. Notið einn maska í einu, eftir þörfum húðarinnar.
Samdægurs afhending