
Azure Tan Violet Base DARK TO ULTRA DARK Self Tan Mousse er litaleiðréttandi brúnkufroða sem hlutleysir gula/gyllta undirtóna fyrir ríkulega brúnku.
Flettu húðina og fjarlægðu hár um sólarhring áður en þú berð froðuna á. Notaðu hana á hreina og þurra húð, lausa við ilmvatn og svitalyktareyði. Dældu froðunni beint á brúnkuhanska og berðu hana á með hringlaga hreyfingum, farðu sparlega yfir olnboga, hné, ökkla, hendur og fætur. Leyfðu vörunni að liggja á í 1 klukkustund fyrir dökkan lit og 3 klukkustundir fyrir ofurdökkan. Skolaðu síðan af með volgu vatni, án sápu og skrúbbs, þar til vatnið rennur tært og þerraðu húðina varlega. Berðu á rakakrem daglega til að viðhalda brúnkunni og flettu húðina eftir um 5 daga svo hún dofni jafnt.
Water (Aqua, Eau), Propylene Glycol, Dihydroxyacetone, Glycerin, Niacinamide (Vitamin B3), Panthenol (Vitamin B5), Ethoxydiglycol, Caramel, Capryl Glucoside, Cocamidopropyl Betaine, Theobroma Cacao (Cocoa) Extract, Argania Spinosa (Argan) Kernel Oil, Ascorbic Acid (Vitamin C), Tocopheryl Acetate (Vitamin E), Fragrance (Parfum), Phenoxyethanol, Ethylhexylglycerin, Ceramide NP, Ceramide AP, Ceramide EOP, Phytosphingosine, Cholesterol, Sodium Lauroyl Lactylate, Polysorbate 20, Sodium Hyaluronate (Hyaluronic Acid), Cetyl Hydroxyethylcellulose, Citric Acid, Carbomer, Ethylhexylglycerin, Alcohol Denat., Tris(Tetramethylhydroxypiperidinol) Citrate, Xanthan Gum, Red 40 (CI 16035), Yellow 5 (CI 19140), Blue 1 (CI 42090)
Þar sem formúlan býr yfir virkum innihaldsefnum, þá virkar hún einnig sem húðmeðferð fyrir líkamann til að vinna gegn öldrunarmerkjum og skilur húðina eftir rakafyllta, nærða og brúna.
HÝALÚRÓNSÝRA –Dregur raka inn í húðina til að hjálpa við að viðhalda rakastigi hennar og skapa slétta og þrýstna húð.
B3-, B5-, C- OG E-VÍTAMÍN – Ofurandoxunarefni sem bæta og hjálpa húðinni við að verjast skaðlegum áhrifum útfjólublárra geisla, sem geta hraðað öldrun húðarinnar.
SERAMÍÐBLANDA – Endurbyggir og endurheimtir varnarlag húðarinnar til að viðhalda raka.
Leyfðu vörunni að liggja á í 1 klukkutíma: Dökkur litur
Leyfðu vörunni á liggja á í 3 klukkutíma: Ofurdökkur litur