Einfaldaðu undirbúninginn fyrir sjálfbrúnku með Azure Tan Reusable Pre Tan Exfoliator Mitt. Hanskinn fjarlægir dauðar húðfrumur og undirbýr húðina fyrir jafnari og fallegri brúnku.
Notaðu hanskann í sturtu um sólarhring áður en þú berð á þig brúnku. Bleyttu húðina og hanskann, strjúktu í hringlaga hreyfingum yfir líkamann og gefðu olnbogum, hnjám og ökklum sérstakan gaum. Skolaðu af og þerraðu húðina vel. Skolaðu hanskann eftir notkun og leyfðu honum að þorna.
Samdægurs afhending
Hanskinn fjarlægir dauðar húðfrumur, þurra húð og leifar af eldri brúnku á mildan hátt og gerir húðina þannig mjúka og tilbúna fyrir ásetningu brúnkuvörunnar. Sömuleiðis gerir hann virkum innihaldsefnum kleift að komast dýpra niður í húðlögin fyrir aukinn ávinning.
Sérhannaður með teygjanlegu úlnliðsbandi fyrir aukna stjórn og grip, þannig passar hann betur utan um höndina og rennur ekki til.