Markviss þriggja vara rútína fyrir vana retínólnotendur sem vilja taka næsta skref og vinna gegn fínum línum, ójafnri áferð, sýnilegum svitaholum og minnkandi stinnleika.
Celimax Retinal Shot inniheldur 0,1% retinal og er öflugri valkostur fyrir húð sem hefur þegar byggt upp þol fyrir retínóíðum. COSRX Ceramide Skin Barrier Moisturizer veitir húðinni raka og styður við húðvörnina, en SKIN1004 Hyalu-Cica Sun Serum SPF50+ veitir nauðsynlega sólarvörn yfir daginn.
Settið inniheldur
Celimax The Vita-A Retinal Shot Tightening Booster
COSRX The Ceramide Skin Barrier Moisturizer
SKIN1004 Hyalu-Cica Water-Fit Sun Serum SPF50+
Notið lítið magn af Celimax Retinal Shot á hreina og þurra húð að kvöldi, fyrst 1–2 sinnum í viku. Berið COSRX-kremið yfir og aukið notkunina smám saman eftir þoli húðarinnar. Á morgnana er mikilvægt að bera SKIN1004-sólarvörnina ríkulega á andlit og háls. Ekki nota retinal sama kvöld og sýrur, skrúbb eða aðrar retínólvörur. Rútínan er ekki ætluð byrjendum. Retínóíð eru ekki ráðlögð á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur.
Samdægurs afhending