Einföld þriggja vara rútína fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref með retínóli eða vilja milda en markvissa endurnýjun húðarinnar.
Haruharu Night Knight Retinol Serum hjálpar til við að bæta ásýnd fínna lína, ójafnrar áferðar og litabreytinga. COSRX Ceramide Skin Barrier Moisturizer veitir raka og styður við húðvörnina, en SKIN1004 Hyalu-Cica Sun Serum SPF50+ ver húðina yfir daginn.
Settið inniheldur
Haruharu Wonder Black Rice Night Knight Retinol Serum
COSRX The Ceramide Skin Barrier Moisturizer
SKIN1004 Hyalu-Cica Water-Fit Sun Serum SPF50+
Notið retínólserumið á hreina og þurra húð að kvöldi, fyrst 1–2 sinnum í viku. Notið lítið magn og berið COSRX-kremið yfir. Auka má notkunina smám saman eftir þoli húðarinnar. Á morgnana er mikilvægt að bera SKIN1004-sólarvörnina ríkulega á andlit og háls. Ekki nota retínólið sama kvöld og sýrur, skrúbb eða aðrar retínólvörur. Retínóíð eru ekki ráðlögð á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur.
Samdægurs afhending