
Fjölnota húðumhirðutæki sem sameinar sex tæknilausnir í fjórum stillingum. Tækið er hannað til að hjálpa húðvörum að hverfa betur inn í húðina, bæta ásýnd svitahola og áferðar og gefa húðinni stinnara, sléttara og ljómandi yfirbragð. Hægt er að velja úr fimm styrkleikastigum og tengja tækið við AGE-R appið fyrir leiðsögn og sérsniðna notkun.
Haldið aflhnappinum inni til að kveikja. Veljið stillingu og byrjið alltaf á styrkleika 1. Air Shot: Notist á hreina og alveg þurra húð í um 5 mínútur, 2–3 sinnum í viku. Strjúkið létt frá miðju andlitsins og út. Booster: Berið serum eða ampúlu á húðina og rennið tækinu yfir hana í hringlaga hreyfingum í 5–10 mínútur. MC: Berið krem eða gel á húðina og færið tækið hægt upp og út eftir andlitinu í 5–10 mínútur. Derma Shot: Notist með kremi eða geli. Færið tækið hægt út eftir andlitinu og haldið því kyrru í 1–2 sekúndur á þeim svæðum sem unnið er með. Ef allar stillingar eru notaðar saman er röðin: Air Shot → Booster → MC → Derma Shot. Mikilvægt: Ekki nota Air Shot með húðvörum. Forðist að nota tækið með retínóli, tretínóíni, spicule-vörum eða öðrum sterkum efnum sem geta ert húðina. Lesið meðfylgjandi notkunar- og öryggisleiðbeiningar fyrir fyrstu notkun.
Stillingar
Air Shot: Fyrir ásýnd svitahola og ójafna áferð.
Booster: Hjálpar serum og öðrum húðvörum að hverfa betur inn í húðina.
MC: Örstraumar sem styðja við mýkt og fyllra yfirbragð.
Derma Shot: EMS-tækni fyrir stinnara yfirbragð og skýrari andlitslínur.